Bútasaumur nýtur mikilla vinsælda á Íslandi þessa dagana. Það er þess vegna tilvalið að benda lesendum Infopro á glæsilega vefsíðu, International Quilt Study Center Explorer, sem tilnefnd var til verðlauna í flokki menningarstofnana í samkeppni um bestu
vefsetrin árið 2009, The Webby awards.
Vefsíðan er allt í senn safn, saga og frásagnir frá mörgum löndum sem tengjast bútasaumi. Einnig er reynt að svara spurningunni "hvað er bútasaumur?" og kennt hvernig á að gera slíkt.
Þarna er um að ræða stærsta almenna safn bútasaumsteppa í veröldinni eða nærri 900 teppi frá 17 löndum.. Hægt er að leita og skoða eftir dagsetningu, mynstri og landsvæði.
London Time
