Lest eða rúta til Oxford?
Það er lítið mál að skreppa í dagsferð til Oxford frá London. Ferðin tekur klukkustund ef farið er með lest (First Great Western frá Paddington) en upp undir 1 klst. og 50 mín. með rútu/langferðabifreið (National Express, Oxford Tube).
Ég gerði samanburð fyrir nokkru síðan fyrir sjálfa mig á ferðum til Oxford. Ég athugaði með lest annars vegar á vefnum nationalrail.co.uk og notaði þar tól sem heitir Cheapest fare finder og hins vegar verð með langferðabifreið/rútu á vefnum nationalexpress.co.uk. Þeir eru líka með samskonar tól sem þeir kalla Low fare finder.
Continue reading "Dagsferð til Oxford" »
Bath er ein þeirra borga sem snjallt er að hafa í huga ef tími er fyrir dagsferðir frá London. Að ekki sé talað um að dvelja einfaldlega í Bath í nokkra daga. Af nógu er að taka.
Ég ferðaðist með rútu frá National Express því þeir buðu hagstæðara verð en lestirnar að þessu sinni, þ.e. ég bar saman verð á rútum hjá National Express og lestum National Rail og keypti á endanum miðann með góðum fyrirvara yfir netið hjá National Express. Þannig kostaði ferðin 15 pund fram og til baka og lagt var upp frá Victoria Coach Station.
Continue reading "Dagsferð til Bath" »
Það er upplagt að blanda saman heimsókn til Greenwich og gönguferð um Isle of Dogs - Docklands. Myndir hér.
Hægt er að komast til Greenwich á nokkra vegu; líklega er einfaldast að taka lest (tilheyrir Underground) sem heitir DLR (Dockland Light Railway) til Island Gardens (á Isle of Dogs) og ganga svo undir ána Thames í sérstökum neðanjarðargöngum sem liggja frá Docklands yfir í Greenwich hinum megin árinnar. Það er líka hægt að sigla þangað með "River Boats" svo eitthvað sé nefnt.
Continue reading "Greenwich – Docklands" »
Það tekur aðeins rúman klukkutíma með lest að ferðast til borgarinnar Brighton á suðurströnd Englands. Og það var lest sem varð fyrir valinu þar sem sá möguleiki var ódýrari en rúta í samanburði að þessu sinni, sjá www.nationalrail.co.uk (cheapest fare finder).
Myndir frá Brighton.
Brighton, (rúmlega 150 þús. manna borg) er afar vinsæll ferðamannastaður og það var auðséð á mannfjöldanum sem rölti þar um einn laugardag í september. Nokkuð ljóst að fjöldi ferðamanna er ennþá meiri yfir sumarmánuðina.
Continue reading "Dagsferð til Brighton" »