Það rann upp fyrir mér nýlega hversu snjallt það getur verið að nýta sér hraðlestina Eurostar frá London, t.d. til Parísar undir Ermarsundið.
Ef pantað er með góðum fyrirvara, má ná afar góðum fargjöldum einkum þegar lítill sveigjanleiki er í miðanum.
Farið er frá lestarstöðinni St. Pancras sem er áföst neðanjarðarlestarstöðinni Kings Cross í London.
Brottförin líkist að sumu leyti flugvallarbrottför, nema fyrirhafnarminni og kostnaðarminni þar sem ekki þarf að greiða stórfé til að komast til/frá flugvelli.

London Time