Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að blogga eitthvað um þá þekktu borg London. En engu að síður ætla ég (öðru nafni Ferðalangur) að dvelja í London í septembermánuði 2010 og gera mér það m.a. til dægrastyttingar að setja svolítinn fróðleik inn á þennan vef um London sem varð til fyrir nokkru síðan, en verður vonandi ítarlegri með tíð og tíma. Hver veit nema að áhugasamir ferðalangar finni þar nýtilega mola af og til.
Íbúðaskipti Reykjavík - London
Það hefur lengi verið á dagskrá að skipta á íbúð við einhverja góða aðila erlendis og þegar að loksins sköpuðust kjöraðstæður í mínu lífi var ekki að sökum að spyrja, ég fór að leita að "fórnarlömbum" erlendis.
Continue reading "Íbúðaskipti í London" »
BBC One
„Hazy sunshine“, sagði veðurfréttamaðurinn á BBC One sjónvarpsstöðinni í morgun. Það gekk nokkurn veginn eftir og mátti eiginlega ekki vera sterkara í gönguferð dagsins.
Annars er það af BBC One að segja að þar á bæ hafa menn miklar áhyggjur af starfsfólki neðanjarðarlestanna sem ekki er sátt við kjör sín og enn áhyggjufyllri yfir því hvort mögulega megi bendla utanríkisráðherrann, William Hague, við samkynhneigð. Það er satt að segja frekar kómískt að sjá svona virðulegan fréttamiðil velta sér upp úr þessum hlutum. Sjálf er ég nokkuð róleg yfir Mr. Hague, enda stutt fyrir mig að leita ráða ef áhyggjurnar af honum skyldu sliga mig því hér rétt hjá er „stress klíník“ og ef það dugar ekki þá er ameríska kirkjan með útibú á næstu grösum. Mér er því borgið – hvernig sem fer.
Continue reading "Ævintýratré og íkornar í London" »
Ég komst að raun um hvað nafnið Soho þýðir þegar ég fór að undirbúa gönguferð þangað með prestinum góða og "Ipoddinum" mínum af londonwalks.org. Soho er einfaldlega veiðihróp... "hunting cry"- ekkert dularfyllra en það! Áður en Soho byggðist eins og við þekkjum það í dag, voru þarna veiðilendur aðalsmanna...
Gönguferðina fór ég á föstudegi og skemmti mér konunglega. Ekki síst vegna þess að Ipoddinn leiddi mig inn í ýmsa afkima hverfisins og einnig á fjölfarna staði sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir að tilheyrðu Soho. Myndir og upplýsingar hér.
Continue reading "Frá Soho til Oxford" »
Hvergi hef ég séð annan eins húmor í bókaútgáfu eins og í Bretlandi. „The Pessimist‘s Handbook – A Companion to Despair“. Þennan skemmtilega titil rakst ég á fyrir utan bókabúð þar sem ég arkaði eftir Great Russell Street á leiðinni í The British Museum. Mátti verulega passa mig að freistast ekki til að taka upp budduna, bara vegna titilsins.
Dagurinn í dag var safnadagur, enda British Museum örstutt frá hreiðrinu mínu litla á Fitzroy Street og London Underground í verkfalli í dag. Sjá nánar Heimsókn í British Museum.
Safnið er í svo virðulegri og glæsilegri byggingu að litlu mátti muna að ég bugtaði mig og beygði áður en ég gekk inn. Átti feikna góða stund þar í félagsskap Grikkja, Etrúska og Engilsaxa og raunar víkinga líka. Það eina sem truflaði mig ofurlítið voru fræðsluplaköt á veggjum um víkinga, bústaði þeirra og ferðir - þar var ekki minnst einu orði á Ísland og nokkuð ljóst að það vegur ekki sérlega þungt í sagnfræði þeirra British Museum manna. Eða kannski eimir bara eftir af 2007 syndróminu hjá mér sjálfri...
Continue reading "Handbók fyrir svartsýna" »
"Your intelligence and aptitude have everything to do with your income, your future, your personal relationships and your life. If you are not happy with life, you can find out why". Fékk svona auglýsingapésa í dag á Tottenham Court Road sem bar yfirskriftina "Personality and IQ testing" og svo kom þessi fíni texti hér að ofan. Þetta er án efa lausn á öllum mínum vandamálum - hefði þó þurft að rekast á þetta fyrir 30 árum eða svo - en kannski er það aldrei of seint!
Continue reading "Not visible to the naked eye" »
Leti hefur framar öðru einkennt Lundúnafarann undanfarna daga. Og þó - ég brá mér í dagsferð á slóðir Rómverja og Jane Austen í Bath s.l. laugardag.
Bath
Bath, þessi stórmerkilega borg, er á heimsminjaskrá UNESCO og ekki að ósekju því þarna gerðu Rómverjar töluverðan stans á meðan þeir reyndu að leggja undir sig allar mögulegar byggðir heims skömmu eftir Krists burð. Ástæðan? Líkast til sú að í Bath eru heitar uppsprettur sem hvergi annars staðar er að finna í Bretlandi. Þetta var því ákjósanlegur staður til að láta líða úr sér... og byggja rómversk böð sem enn standa.
Continue reading "Af Bath og Bill Bryson" »
Þessi pistill hefur dregist (svo mikið að gera og skoða!) en það þýðir að hann verður svolítið "bland í poka".
Af hárvandræðum (fyrir kvenkyns lesendur)
Ég ætlaði svo sannarlega ekki að taka neinn óþarfa með mér að heiman og sleppti því öllu svona pjatti eins og sérstakri hárnæringu o.fl. Þar kom vel á vondan og þegar ég stóð frammi fyrir því að horfa upp á hárið beinlínis brotna eftir daglega Lundúnahárþvotta í tvær vikur, voru góð ráð dýr þrátt fyrir kaup á alls kyns tegundum ódýrrar næringar í Boots...
Netið bjargaði málum eins og oft áður og ég fann litla hársnyrtistofu hér í grenndinni sem heitir Redhead í Charlotte Place sem notar vörur sem ég hef góða reynslu af (þetta skilja bara konur!). Fékk hjá þeim n.k. „emergency“ sjampó og næringu og nú er tilveran öll önnur (og pyngjan líka). Hef þá trú að ég komist með nokkrar hárlufsur óbrotnar heim.
Continue reading "Bland í poka" »