Það er fátt eins skemmtilegt og að bregða sér á gott leikrit eða söngleik í London. Úrvalið er afar mikið og stundum erfitt að velja. En hvernig er best að bera sig að við miðakaupin? Og hvernig er hægt að fá þá sem ódýrasta? - Best er að bera saman miðaverð nokkurra vefsíðna því það eru margir að selja miða gegnum vefinn.
Ef þú vilt taka áhættu og bíða með miðakaup þar til á síðustu stundu - eða þar til þú ert komin/nn til London þá er hægt að fara á Leicester Square og athuga með miða hjá tkts á Leicester Square. Tkts var stofnað 1980 og er eini opinberi sölustaðurinn sem selur miða á hálfvirði og er n.k. útsölustaður fyrir leikhúsmiða frá the Society of London Theatre. Þetta er í lágreistu húsi á Leicester Square, opið mánudaga - laugardaga kl. 10.00 – 19.00 og sunnudaga kl. 11.00 - 16.00.
Athugið að fram til þessa hefur verið lítið um leiksýningar í London á sunnudagskvöldum en það kann þó að vera að breytast.
Official London Theatre Guide
Þetta er hin opinbera vefsíða leikhúsanna í London (the Society of London Theatre). Hér er hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfi og fá tilboð send reglulega í tölvupósti.
Enn og aftur: Hér gildir að bera saman verð og sætaframboð.

London Time