Allt um London fyrir sjálfstæða ferðalanga. Upplýsingar um flug, hótel, bílaleigu, leikhús og söngleiki, neðanjarðarlestir, gönguferðir og verslanir með meiru.
Allar upplýsingar um helstu markaði í London. Hvar eru þeir? Hvaða neðanjarðarlestir er best að taka? Hvenær eru þeir opnir og hvað er selt á hverjum markaði? Myndir (smellið á heiti markaðar og síðan á Street View).
Camden Market er risastór og þar er mikið í boð af fatnaði, "accessories" og fleiru fyrir unglinga og fólk af yngri kynslóðinni. Það mætti eiginlega segja að þetta væri líka markaður fyrir bóhema og furðufugla :).
Ég var þarna á sunnudegi og mannmergðin var með ólíkindum enda er sagt að um 100.000 manns leggi leið sína þangað um hverja helgi. Markaðurinn var bæði undir beru lofti og inni.
Í raun og veru samanstendur Camden Market af 6 mörkuðum alls sem sameinast þarna í einum. Flestir þeirra eru líka opnir virka daga kl. 11 – 18:00 en allir á sama tíma 11 – 18 á laugardögum og sunnudögum og þá er líka mesta fjörið...
Það er einfaldlega skylda fyrir sælkera og "gourmet" fólk að heimsækja þennan kostulega og stóra matarmarkað hinum megin árinnar í Southwark hverfinu, rétt á bak við dómkirkjuna í Southwark.
Það hentar vel að sameina þá heimsókn gönguferð yfir göngubrúna Millennium Bridge sem liggur á milli Southwark Bridge og Blackfriars Bridge. Southwark megin endar göngubrúin hjá safninu Tate Modern og Shakespeares Globe leikhúsinu en hinum megin liggur hin fræga dómkirkja St. Paul beint framundan þegar komið er af brúnni.
Á Borough Market má finna matvæli frá aðal "gourmet" löndum Evrópu s.s. Ítalíu, Spáni og Frakklandi og það þarf eiginlega að ganga um með vasaklút til að hafa hemil á munnvatninu.... :). Ostar, brauð, fiskur, svo eitthvað sé nefnt, þekja þarna borð bæði úti og inni.
Markaðurinn er opinn fimmtudaga (11 - 17), föstudaga (12 - 18) og laugardaga (8 - 17).