Á vefsíðu neðanjarðarlestanna í London, London Underground, eru afar gagnlegar upplýsingar - t.d. kort af neðanjarðarlestarkerfinu, Journey Planner, þ.e. upplýsingar um hvernig best er að komast frá einum stað til annars, upplýsingar um seinkanir og tafir á einstaka leiðum. Síðast en ekki síst er allt um fargjöld en nú er það Oyster rafræna kortið sem er hagkvæmasti kosturinn. Enn er þó hægt að kaupa dagskort (á pappír) sem getur verið ágætur möguleiki fyrir þá sem að stoppa stutt en þurfa þó að geta hoppað nokkrum sinnum í lestirnar.

London Time