Hafið þið einhvern tímann staðnæmst í London við einhverja af þeim ótalmörgu styttum og minnismerkjum sem finna má í þessari stóru borg? Velt því fyrir ykkur hvaða saga gæti legið á bak við stytturnar? Hvaða afrek, hetjudáður eða jafnvel hryllingsverk?
Í greininni Monumental journey through London af vefsíðu Telegraph.co.uk segir Christopher Somerville frá merkilegri bók, Discovering London Statues and Monuments, eftir Margaret Baker og heimsækir einar tíu styttur af fólki víðsvegar um London sem hann hafði ýmist aldrei heyrt af áður, þekkti og dáðist að eða styttur sem voru beinlínis áhrifamiklar/furðulegar.
Continue reading "Stytturnar í London" »
Það er veruleg ástæða til að hvetja fólk á öllum aldri til að heimsækja Science Museum í London. Þar er eitthvað fyrir alla aldurshópa og ókeypis aðgangur.
Safnið stendur á bak við Natural History Museum, við Exhibition Road., London SW7.
Continue reading "Spæjarar og Spitfire í Science Museum, London" »
Hefurðu heimsótt Docklandshverfið í London? Kannski er það eitthvað sem þú ættir að prófa í næstu ferð.
Í skemmtilegri grein frá Frommers.com London's Docklands: Modern, Exciting and Cheap(er) er hægt að lesa sér til um þetta sérstæða hverfi.
Flestir ferðamenn láta sér nægja að sækja heim West End og City í London en segja má að í Docklands sé allt annar heimur sem gaman er að skoða, sérstaklega Isle of Dogs. Ekki má heldur gleyma því að 2012 verða Óympíuleikarnir haldnir rétt norðan við Docklands svo allar líkur eru á að við eigum eftir að heyra töluvert um austurhluta London á næstu árum.
Gisting í Docklands er mun ódýrari en t.d. í West End - sjá gisting í Docklands.
Continue reading "Docklandshverfið í London" »
Heimsókn í The British Museum er búin að vera á dagskrá í mörg ár. Nú loksins lét ég af því verða.
Safnið er aðeins steinsnar frá enda Oxford Street, þ.e. gatnamótum þess og Tottenham Court Road. Þar stendur það við eina hliðargötu Tottenham Court Road, aðalinngangur frá Great Russell Street. Aðgangur er ókeypis.
Continue reading "Heimsókn í British Museum" »
Það er svo sannarlega þess virði, bæði fyrir börn og fullorðna, að bregða sér í Natural History Museum við Cromwell Road í London. Fólksfjöldinn í safninu bar þeirri staðreynd líka vitni.
Eins og með önnur söfn er viturlegt að vera búinn að skoða vefsíðu þeirra og miða á það sem áhugaverðast þykir fyrir hvern og einn. Gott líka að skoða kort af safninu.
Það er ókeypis aðgangur í safnið nema afmarkaðar sýningar.
Continue reading "Heimsókn í Natural History Museum, London" »
Þeir sem hafa áhuga á sögu London, upphafi og þróun í gegnum aldirnar, ættu svo sannarlega ekki að láta undir höfuð leggjast að skreppa dagsstund í Museum of London. Safnið er staðsett í City hverfinu, rétt hjá St. Paul dómkirkjunni og því hægt að sameina heimsókn á þessa tvo staði.
Einfaldast er að koma til safnsins með neðanjarðarlest að St. Paul Underground ef ekki er rölt á staðinn.
Aðgangur er ÓKEYPIS.
Continue reading "Museum of London" »